ég meina, við lifum bara einu sinni.....
†Reginn Þór†
gömlu síðurnar
Myndir annara
31.03.2008 23:35:13 / Quémango

Golubrulla

Ef ég ætti að líkja mér við fugl þá myndi ég vera svona sambland af skúmi og álft.  Kýs ég að kalla þá samsuðu Golubrullu.  Íslenska golubrullan er að mörgu leyti frábrugðin öðrum fuglum, hún flýgur ekki enda lofthrædd með eindæmum og einnig vegna framanáþyngsla.  Eins og hefð er fyrir með íslenska fugla, þá plumar brullan sig vel í kulda og snjó og getur legið dögum saman í snjónum og sofið.  Þangað til illvígan kött ber á garðinn en þá er hún ekki lengi að taka til fótanna og staulast í hvarf.  Goggurinn er mjög sveigjanlegur og þægilegur til átu enda þarf brulla oft að slást um matinn á heimili sínu þar sem einnig viðhafast tveir fullorðnir fálkar og tvær kríur sem eru harðar í horn að taka.  Brullan étur næstum allt sem fyrir framan hana er, hvort sem um ræðir hest eða sígarettustubba.  Þegar brullan hyggst gera sér glaðan dag klifrar hún alla leið uppí súgandiskletta þar sem hinir og þessir fuglar koma saman í fjörunni og stíga dans.  Hefur hún háttinn á að skófla í sig gerjuðum eplum þannig að alkóhólprósentan nái helst yfir 0,2 prómill.  Þá vill oft gerast að hún vaggi um alla ey og detti svo á bólakaf í sjóinn og oft má sjá aragrúa af fljótandi hvítum fiðurboltum í sjónum á sunnudagsmorgnum en þar eru golubrullur að sofa úr sér með bumbuna uppúr.  Ferjan Baldur hefur oft lennt í því að þurfa að flauta hátt og snjallt til að vekja þær en ef allt bregst þá fylgja bara nokkrar með í skrúfuna.  Golubrulla er löt með eindæmum og á besta aldri verður hún oft um 50-60 kíló.  Mökun fer fram einu sinni á ári en þá gefur karlfuglinn frá sér mökunarhljóð sem oft minnir á rödd Brads Pitt, það er vísindalega sannað að það hefur aldrei klikkað.  Golubrullan deyr yfirleitt í kringum 4 aldursár, stundum 5 ef hún nær hárri elli.  Algengasta dánarorsök er þó offita eða smurolíueitrun. 

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 12:43:57 / Quémango

Fyrsta gígantíska mamman!

JÆÆÆÆJA!

Ósk okkar Hjartardóttir er orðin mamma, LOKSINS!

Stúlkan eignaðist lítinn strák í nótt og samkvæmt heimildum heilsast móður, barni og föður og öllum pakkanum vel!

Við ÓSKum þér og þínum innilega til hamingju og vonandi fáum við að hitta drenginn og spilla honum sem fyrst! Um að gera að byrja snemma á því!

Það er nú ekki AMALEGT að krúttilingurinn hafi fæðst á þessum drottins degi því DRÍFA ÁRNADÓTTIR er tvítug í dag! Til hamingju með það kæra skaft!
Hrönn varð einnig tvítug þann 21.mars og til hamingju með það!
GRÍÐALEG HAMINGJA Í GANGI hjá okkur dömunum!

Það verður ekki leiðinlegt þegar þær stöllur halda uppá fertugsafmælið og litlinn heldur upp á tvítugsafmælið og þær kenna honum að detta all rækilega í það ;)

En til hamingju allar saman og megi lífið og þjóðfélagið þroskast með glæsibrag!

GÍGANTÍSKT


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2008 14:23:47 / Quémango

HALLÓ

Jæja kominn tími á pistil?

..nei hættu nú alveg

 

Tilvera mín hefur vægast samt tekið breytingum frá því ég bloggaði síðast.

 

Númer eitt: Ég bý ekki lengur í Byrginu.  Missir Byrgisins var mikill harmleikur fyrir alla og enn í dag eru Hólmarar að súpa seyðið af þessari magnþrungnu umbreytingu. Hæstvirtir djammarar hafa misst tökin á lífinu og syrgja Byrgið af mikilli áfergju yfir e-pillubruðli og bjórsulli.  Ég neyddist til að taka föggur mínar og flytja búferlum eins afskekkt og mögulegt er (nei ekki útá hellissand) uppí Sauraskóg.  Þar ku vera margir sumarbústaðir sem hýsa marga af helstu mislyndismönnum Helgafellssveitar og einn af þeim er bróðir minn. 

 

Ég hef ekki verið að gera góða hluti í skóginum, byrjaði á því að festa bílinn á leiðinni þangað um miðja nótt í símasambandsleysi.  Frábært.  Það var enginn búinn að fara yfir reglurnar með mér...

 

Reglur íbúa Sauraskógs:

  1. Þú verður að eiga jeppa, helst á 40 tommu dekkjum, skítugan og annað hvort pajero, hilux eða einhvern annan ofvaxinn djöful.  Svínslegur lancer station er ekki málið.
  2. Það er must að eiga annað hvort hund, kött eða bæði. 
  3. Það er lykilatriði að skilja engar dyr eftir opnar, ekki einu sinni í 2 sek því þá kemur hjörð af músum og ræðst inn í húsið, étur matinn, sefur í rúmunum og horfir á sjónvörpin.
  4. Það er sniðugt að eiga labbrabbtæki og vera í sambandi við einhvern í nærliggjandi bústöðum því ef einhver ætlar að nauðga þér eða drepa þig þá þýðir lítið að kalla á hjálp.  Einungis stjörnurnar og trén heyra í þér og lítið gagn í þeim.
  5. Ef þú böggar BB og syni og búgarð þeirra, sleppir hann hundunum lausum og ekki nóg með það heldur líka hænunum og kanínunum.

 

 

Þar sem ég á bágt með að fylgja þessum reglum (sérstaklega númer 5) þá læt ég skóginn vera og bý í ferðatösku heima hjá pabba.  Þar fer ég hamförum í að spilla börnunum hans og rústa kaffivélinni svo eitthvað sé nefnt.

 

Númer tvö:  Ég má ekki lengur keyra bíl sökum vesens, tengt hömstrum, athyglisbresti og mannáti.  Milli þess sem ég margbrýt af mér er ég á flótta undan spilltum lögregluþjónum og má einmitt sjá mynd af mér á FBI most wanted síðunni, utan á mjólkurfernum og á fleiri stöðum.  En lögreglan hafði upp á mér og hirti af mér ökuskírteinið og fer ég því allar ferðir mínar ýmist gangandi, á handahlaupum, á þríhjólinu eða með hjálp teleport-tækni. 

 

Númer þrjú:  Ég er enþá í skóla og stefni á að klára hann núna í vor ef allt gengur að óskum en ég álpaðist til að fá mér 40% vinnu á spítalanum.  Ég er að skila miklum afköstum þar milli þess sem ég stel sprautum, renni mér í hjólastól eða hangi inni í lyfjabúri og bryð íbúfen og þamba sorbitol. 

 

Númer fjögur:  Það verður mikið um dýrðir á Forum Beach hótelinu á Rhodos, Grikklandi þann 24.maí næstkomandi.  Talað er um að fá forsetana í 4 nærliggjandi löndum til að mæta á hátíðina og slá upp heljarinnar dönnuðum fagnaði með demöntum, kampavíni og gulli.  Þá mun nefnilega 18 manna útskriftarhópur FSN 2008 mæta á svæðið og ylja grikkjum með nærveru sinni í 2 heilar vikur með ofdrykkju, rústi á hótelherbergjum, og nekt á ströndinni ásamt því að við munum án efa gefa djammlífinu skemmtilegan blæ.  Talað er um að mest öll Evrópa ætli að dissa Eurovision og mæta frekar á þessa stórbrotnu hátíð já eða horfa á hana í beinni útsendingu.  Spennandi það.

 

Númer fimm:  Það verður svipuð stemmning á Þjóðhátíð í Vestmanneyjum í sumar, við munum einnig mæta þar og umbylta heiminum.

 

Einkennilegt frá því að segja að þá lenntum við Gísli í umferðaróhappi í gær þar sem æðri vættum er að þakka að ekki fór verr.  Við bombuðum útaf á leiðinni í skólann og grófum bílinn í snjó, straujuðum yfir eitt stykki vegstiku og enduðum á hlið og svo aftur á réttunni.  Gísli brást við eins og maður, rauk út, óð snjóinn uppá veg og öskraði.  Nenntum ekki að standa í svona veseni.  Meðan við biðum eftir björgunarsveitarbílnum keyrðu rosalega margir framhjá á fleygiferð og skvettu á okkur slabbi, stoppuðu svo í nokkura kílómetra fjarlægð og bökkuðu til okkar en enginn slasaðist þannig að við sendum alla burt. Þurfum að senda einn sjúkrabíl burt og ég beið bara eftir að TF-Sif kæmi fljúgandi og Landhelgisgæsluskipið brunaði í fjöruna svo við gætum sent þá burt. 

 

Ég er farin að éta

(óóó kemur á óvart)

Friður, strjúkið kvið og allt það

Anna Margrét PÉ (eins og Stjáni PÉ!)


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 13:14:31 / Quémango

Langt um liðið síðan ég skriftaði seinast

Fyrirgef þú mér, því ég hef syndgað.

Jæja þá er endurkoman ógurlega. Langt hefur liðið síðan einhvur hefur dritað hér inn, þannig ég hef ákveðið að láta vita af tilvist minni. Þó Anna sé lofandi hér upp í ermina á sér hægri vinstri þá bíð ég ekki endalaust. Breytti líka í páskaþema..

Enjoy... setti inn smá skrítlu gefið ykkur tíma til að setjast niður og lesa.

Ást og friður..

Kv. María Kúld

Vil líka óska Höllu minni til hamingju með litlu prinsessuna!


Listin að búa til barn (Ósk skortir víst ekki þá kunnáttu)

Jónas og frú gátu ekki eignast barn svo þau ákváðu að fá
sæðisgjafa til að koma af starta fjölskyldu. Daginn sem “sæðisgjafinn” átit að
koma í heimsókn, kyssti Jónas konuna sína  bless og sagði “jæja, elskan,
ég er þá farinn í vinnuna, maðurinn kemur fljótlega.”
 
Hálf tíma síðar, er fyrir tilviljun, barnaljósmyndari, staddur í
hverfinu hennar og hringir á bjöllunni í þeirri vona að fá verkefni.
“Góðan daginn frú”, sagði hann, “ég er komin til að…….”
“Ó, þú þarft ekkert að útskýra” sagði Jóna feimnislega, “ég átti von á þér”.
“Í alvöru”, sagði ljósmyndarinn. “Nú það er ánægjuleg, vissirðu að börn eru
mín sérgrein”??    ”Ja, það er nú akkúrat það sem við hjónin vorum að
vonast eftir.  Gjörðu svo vel og komdu inn á fáðu þér sæti”.  Eftir
smástund sagði hún, vandræðalega, “hvar byrjum við?”   “Láttu mig
bara sjá um allt.  Ég byrja yfirleitt  í baðkarinu, svo á sófanum og loks
nokkrar á rúminu.  Stundum er meira að segja stofugólfið heppilegast,
það er hægt að teygja svo vel úr sér það “
 
Baðkarið, stofugólfið, hugsaði Jóna,  Engin undra að þetta gekk
ekkert hjá okkur hjónum -   “Já, frú mín góð, ég get ekki lofað
fullkomnum árangri í hvert skipti, en ef við notum mismunandi stellingar og ég
skýt frá mismunandi sjónarhornum, þá þori ég að lofa að þú verður
ánægð með útkomuna.”  Vá, það er aldeilis mikið sagði Jóna með
andköfum.  ”Frú mín góð, í mínu starfi verður maður að gefa sér
góðan tíma í hlutina. Ég mundi gjarnan vilja skjótast í þetta en
ég er viss um að þú yrðir ekki ánægð með útkomuna.” “Ætli maður kannist
ekki við svoleiðis”, tautað Jóna lágt. Ljósmyndarinn dró upp nokkur
sýnishorn af barnamyndum og benti Jónu á árangurinn.
 
“Mér tókst sérstaklega vel til með þessa tvíbura” sagði
ljósmyndarinn, “eins og mamma þeirra var þó erfið”.  -  ”Var hún erfið?”, spurði Jóna.
“Ég er nú hræddur um það. Ég varð að fara með hana í
lystigarðinn til að ná að ljúka verkinu vel.  Fólk safnaðist að og fylgdist með.”
“Fylgdist með?” sagði Jóna og gapti af undrun - “og þetta tók í allt 3
tíma. Móðirin hrópandi og kallandi allan tímann - ég gat varla
einbeitt mér, svo þegar það byrjaði að dimma varð ég að gefa í, en það
var ekki fyrr en  íkornarnir voru farnir að narta í græjurnar þá varð
ég að hætta og ganga frá.”
 
Jóna hallaði sér fram og sagði “voru þeir í alvöru farnir að narta
í …. græjurnar?”  ”Þetta er alveg satt frú mín góð.”
 
“Jæja ef þú ert tilbúin þá ætla ég að

gera þrífótinn kláran”
“ÞRÍFÓTINN”???
 
“Ó já, frú Jóna. ÉG verð að nota þrífót “to put my Canon on, It’s
much too big to be held in the hand very long.”
 
 
 
ÞAÐ STEINLEIÐ YFIR FRÚ JÓNU.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 11:08:49 / Quémango

Sæl verið þið

Jæja þá er komið að því að skrifa nokkur orð.    Það er sko ekki hægt að segja að það sé búið að vera gaman hjá mér ég er nánast búin að vera veik í viku, jamm það er ekki búið að vera mikill friður hjá mér því það er eins og barnið viti að mér líður illa og þá auðvitað byrjar það á fullu að sparka og hreifa sig nógu mikið og dúndra í rifbeinin mér finnst nú bara skrítið að ég sé ekki með brotin rifbein eftir þetta:D   En ég var að koma úr sónar rétt áðan og barnið er greinilega ekki sitjandi lengur og núna get ég átt eðlilega:) þannig núna get ég kannski bara allt í einu bara farið að eiga hmm skrítin tilfining:D:D    En allavega eins og sumir vita þá fórum við siggi og giftum okkur 1. Febrúar 2008 í Fríkirkjunni, séra Hjörtur Magni gifti okkur þannig ég held að ég geti ekki komið neinum meira á óvart nema ef ég verð aftur ólétt eða einhvað:)

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 16:40:54 / Quémango

eymd, volæði og vonleysi

Í tilefni þess að sex mánuðir eru liðnir frá síðasta bloggi mínu hef ég ákveðið að skrifa eitt stykki punkta-pistil....

Það er vont veður og mér leiðist

Anna hatar janúar

María hatar strumpa

og ég hata Arnór

Í dag er versti dagur árnins, það hefur verið vísindalega sannað

María sér hins vegar um það að gera alla aðra daga óbærilega

Það fauk gamall kall framan á bílinn minn áðan og gerði dæld í húddið og sprungu á framrúðuna

það tengdist því á engan hátt að ég var á 80 km hraða

Ég horfði á Halloween um helgina

sú mynd er kidstuff

ég gamna mér yfir svoleiðis

Ég datt í hálkunni um daginn, á rassinn, það var vont

ég var ekki í buxum og fraus föst við svellið

mamma varð að koma út og hella heitu kakói yfir rassinn á mér til að losa mig

nú kemur kakólykt þegar ég prumpa

Ég sótti um starf aðstoðarþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta

ég fékk ekki starfið

er að hugsa um að kæra landssambandið til feministafélagsins fyrir kynferðislegt misrétti

Ef ég ætti milljarð, þá myndi ég bjóða Dalai Lama í heimsókn

ég myndi samt láta hann borga fyrir gistinguna sjálfur

Þegar ég var 6 ára vann ég víðavangshlaup

síðan þá hefur íþróttaferill minn aðeins legið niður á við

nú er eina hreyfing mín sú að labba frá rúminu að náttborðinu með 500 gramma lóð í sitthvorri hendi

með þessu áframhaldi sé ég fram á að vera komin í gott form fyrir páska

Les þetta einhver?

       

úr þyrnirunna eymdarinnar, Hrönny Bönny 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 18:15:16 / Quémango

Áramótaannáll 2007

Janúar

 

Menntamálaráðuneytið varð fyrir áfalli, sagt er að minnst tveir ritarar hafi fallið í yfirlið þegar fréttirnar bárust. María Kúld skráði sig í FSN og gerði þar stórbrotna endurkomu eftir að hafa eytt tíma sínum á flótta í Argentínu og stundað sjómennsku á Íslandi.

 

Svo illa vildi til að megnið af crewinu lennti saman í söguáfanga og neyddist því Sólrún að færa tímanna inní lokað rými vegna dólgsláta og skerandi hláturs.

 

Stuðbandið hélt fámennt skólaball í FSN

 

Slappur janúar að venju

 

Febrúar

 

Það var fullt tungl eitt nöturlegt kvöld í febrúar þegar Guðmundur í Byrginu lét sjá sig í Helgafellssveit.  Menn muna ekki eftir öðrum eins æsing í skepnunum og margur góður hrúturinn missti vitið þetta kvöld. En það var einungis hobbýbóndinn Kristinn Már Rauði Pálsson sem var þarna á ferð að skemmta á Þorrablótinu á Skildi í gervi kóngsins og varð mikið írafár vegna þess.  Undirritaðri þótti mikið til bróður síns koma og hans bera rassgats, svo mikið að hún gaf íbúð sinni nafnið endanlega nafnið Byrgið.

 

Árshátíð FSN fór fram í Grundarfirði og var hún hin mesta skemmtun, María opinberaði svínslegu hliðar sínar í matnum og hrínaði sem aldrei fyrr, svo hátt að Steinn Ármann veislustjóri var næstum genginn á dyr.  Ballið var með Landi og Sonum og þess má geta að Siggi Már formaður árshátíðarnefndar fór upp á svið og söng með þeim og hefur ekki talað um annað síðan.

 

Engin okkar gat skemmt sér almennilega á þessu blessaða balli og ákváðum við því að gera enn betur daginn eftir og fórum í gleðskap heima hjá Johnny 24.  Það uppskar eina verstu þynnku sem við Kúldarinn höfum upplifað og það þurfti lyftara og börur til að koma okkur á klósettið og út í þynnkumat.

 

Ég ásamt Kúldaranum og Hrönn skruppum í borg óttans á tryllitækinu Klíó Kúld þar sem María fór í sína mánaðalegu læknismeðferð við einhverjum af þeim ótal kvillum sem hún safnaði sér á árinu.  Í þessari ferð komumst við að því að það borgar sig ekki að gera grín að Maríu þegar hún reynir að leggja bíl niðri í bæ. Einn óheppinn bæjarsteggur hló dátt er hann fylgdist með tilþrifum Kúldarans, en mátti taka til fótanna þegar frökenin greip til sveðjunnar. Fleira kom í ljós um Maríu í þessari ferð, en hún þolir ekki þegar fólk drekkur mjólk á kaffihúsum.   Barnaveiðar einkenndu þessa ferð okkar en við skelltum okkur á rúnt um Kópavog og buðum gangandi börnum ýmis gull og græna skóga en ekkert þeirra beit á agnið.  Þá greip Kúldarinn orðið og gargaði: BRÓÐIR ÞINN SKULDAR MÉR PENING!!

Börnin hlupu burt eins og vindurinn og hafa víst ekki sést síðan.

 

Sjúkrasaga Maríu Kúld er sannur harmleikur, en stúlkan er búin að fara svo oft til læknis á árinu að ríkið sá sóma sinn í því að borga henni háar fjárhæðir fyrir að láta íslenska lækna í friði, enda eru þeir farnir að segja upp hver af öðrum.  Það má segja að undirrituð hafi bætt olíu á þetta feigðarbál á djammi einu á Fimm Fiskum þar sem hún í óðagoti sínu hrinti Maríu niður stigann með þeim afleiðingum að stúlkan tognaði í bakinu.  Hún hefur átt í stöðugum vandræðum með bakið á sér síðan og ekki sér fyrir endann á því.  Svona er þetta María mín, þú verður að læra að bera fyrir þig hendurnar!

 

Mars

 

Utanríkisráðuneytið var með öndina í hálsinum daginn sem María Kúld flutti inn þjóðverja að nafni Ann-Sophie Gast.  Hafði hún barist fyrir þessari heimsókn í fjölda ára og það var ekki fyrr en hún sendi launmorðingja heim til Ingibjargar Sólrúnar utanríkisráðherra og hótaði henni barsmíðum að hún fékk að bjóða stúlkunni til Íslands, en Ann-Sophie þessi var einn helsti uppreisnarseggur Hitlersæskunnar og setti á laggirnar nýnasistaflokk fyrir fólk undir tvítugu.  Viðbúningurinn var hins vegar óþarfur því stúlkan ku hafa róast síðan hún og María hrintu af stað byltingu í Argentínu á sínum tíma.

 

80’s ball FSN fór í hundana en þrjóskir og djammþyrstir nemendur þessa skóla gáfust ekki upp og redduðu 80’s djammi á Skildi sem var dúndurgott þangað til vinir okkar í löggunni stoppuðu það.  Þá flykktist mannskapurinn heim til Hrannar og hélt þar áfram drykkju og endaði sú samkoma vægast sagt með ósköpum, snæfellsbæingar stálu teppi, hólmarar úthelltu blóði og lögreglan kom og skakkaði leikinn enn á ný þar sem allt virtist ætla um koll að keyra.  Samt sem áður einn besta djamm ársins að mínu mati og henni Ann-Sophie leiddist ekki á Hólmaradjammi þó að henni hafi leiðst forfæringar íslenskra karlmanna, en hver vitleysingurinn á eftir öðrum reyndi að fleka hana árangurslaust.

 

Hjónaleysin Drífa Kazmi og Daníel skelltu sér í rómantíska steikingu á Kanarí og komu vel grilluð heim.

 

Djamm þar sem tíðkaðist að drekka áfengi með túrtöppum, önnur eins subbulegheit hafa ekki sést í háa herrans tíð.

 

Eitt af vandræðalegustu augnablikum lífs míns varð á Bensó þegar Hólmurinn var uppfullur af íslenskum celebum og ríkisbubbum.  Ég rambaði á 1000 króna seðil á stéttinni og hugðist eigna mér hann en þá kom engin önnur en Svanhildur Hólm, kvenskörungurinn og eigandi seðilsins og krafðist hans aftur.  Mér varð mikið um þar sem Kúldarinn og Auður sátu inni í bíl og trylltust úr hlátri.  Þá má allavega segja að ég hafi gert þarna ræfilslega tilraun til að eiga fyrir salti í grautinn en nei, milljónamæringurinn gat ekki séð af þessum skitna þúsundkalli.  Hefur þú rænt íslenska ofurstjörnu? Hringdu þá í mig og segðu mér hvað ég gerði vitlaust...

 

Drifskaftið varð 19 ára og hélt þar ansi skemmtilegt matarboð áður en hún hélt á vit brúnkunnar á Kanarí.

 

Hrönn varð líka 19 ára en hélt ekkert partý.

 

Gólið, söngvakeppni FSN fór fram þar sem ég skellti mér í hlutverk söngkonu bakvið framlag Stuðbandsins, þeir tóku þann pól í hæðina að skella bara í eitt stykki kór.  Við komumst ágætlega frá því og lenntum í 2.sæti. 

 

Ég lét rífa úr mér endajaxl. Það var vont.

 

Apríl

 

Ölvaðir menn gera innrás í Byrgið meðan ég steinssef, velta hillu um koll og staulast svo út með miklum veltingum og erfiðismunum.  Ég svaf ekki mikið meira þá nótt nema vopnuð kíttispaða sem var eina gagnlega vopnið sem fannst á heimilinu.  Eftir það neitaði ég Bjössa nokkrum Kolla um leigugreiðslur fyrr en hann fengi sér lykil svo hann gæti læst og hindrað að svona himpigimpi láti sjá sig aftur innan okkar veggja og gangi berserksgang alla leið niður í kjallara.

 

Ósk var fyrst kvenna í Gígantískt til að skríða inní hinn hræðilega heim þrítugsaldursins.

 

Við nokkrar skelltum okkur í tvítugsafmæli Snæbjörns Aðalsteinssonar í Ólafsvík þar sem hann sló upp umfangsmiklu teiti sem endaði svo í trylltum dansi á Gilinu.  En við María lenntum í hræðilegri lífsreynslu er við hugðumst kasta af okkur vatni heima hjá Snabbanum, Mæjan var í þann mund að girða niður um sig og svipta huluni af hennar allra heilagasta þegar hún rekur augun í sturtuna og rekur upp skaðræðisóp.  Þar fyrir innan mótaði fyrir jakkaklæddum manni sem var að fela sig.  Sá reyndist vera rauðhaus vestursins og allsherjar pervert Jón Steinar frá Sandi.  Okkur ofbauð perraskapurinn en hann sagðist einungis hafa ætlað að skella sér í sturtu. Eftir að hafa gengið í skrokk á honum fram og aftur fyrirgáfum við sandaragreyinu, menn eru nú vanir að beita ýmsum bellibrögðum til að sjá okkur stöllur pissa.

 

Maí

 

Auður Hinriksdóttir kláraði hinn langþráða stúdent.

 

Hrönn stakk af til Bólivíu í fáeinar vikur.

 

Ég hóf sjálfboðastarf í líkamsræktarstöðinni Átak.

 

Ég stakk af til Rómar, með Rómarhópnum margrómaða, sú ferð einkenndist af drykkju og sögulegum atburðum, hitabylgju og ég fríkaði út af frjókornaofnæmi og eyddi of miklum pening.  Komum svo við í London og ég fékk víðáttubrjálæði á Oxford Street og eyddi meiri pening.  Týndi veskinu mínu á McDonalds sem ég fann svo aftur fyrir algjöra lukku.  Ferðin var stórfín og góður hópur þarna á ferð.  Ég gerði loks misheppnaða tilraun til að smygla heim nokkrum rómverskum dúfum.

 

Júní

 

Ég hóf störf á sjónum á Baldri, gríðalega fín vinna á köflum, langir vinnudagar en löng frí þess á milli.

 

Stjáni okkar Hildirbrands var sestur að í partýhöll við Aðalgötu og þar voru margir góðir hittingar yfir sumarið og Byrgið fékk þar kærkomið frí frá partýstandi.

 

Ég fékk að heyra subbulegar djammsögur af crewinu sem fór á Írska daga, m.a að María hafi bókstaflega fengið mann til að reyna að fremja sjálfsmorð, einhver fékk tré uppí anusinn, Gísli fékk stól í hausinn og Hemmi vildi að fólk héldi kjafti. Sagan er önnur að segja af Magnúsi Má, ólsara sem stressaði sig um of vegna hárkollu.

 

Júlí

 

Eitt umfangsmesta partý ársins var haldið í Kúldshúsi er systurnar skelltu í grillveislu þar sem þemað var hattar og sólgleraugu.  Menn átu duglega og skáluðu og sumir komust ekki á Fiskana heldur gerðu sig heimakomna í Kúldshúsi, þar er um að ræða áðurnefndan Kristinn bróður minn sem hélt vöku fyrir húsráðendum með hrotum sem líkja má við götuboranir Reykjavíkurborgar.  Daníel Kazmi kom víst ekki dúr á auga þá nótt en kona hans Drífa segist ekki hafa sofið svona vel síðan í móðurkviði.

 

Ég lagði upp í svaðilför mikla í blíðskaparveðri og brunaði á Kindabílnum ínn og útúr Baldri yfir fjallgarða og himinháar heiðar þar sem bíllinnn var að fara á kostum, brunaði upp lóðréttar brekkur eins og ekkert væri.  Áfangastaðurinn var Ísafjörður í heimsókn til hinnar óléttu Birgittu minnar.  Planið hjá mér var að djamma á meðan hún keyrði, við kíktum á steindauða útihátíð á Suðureyri og eyddum megninu af helginni í svefn.  Virkilega ljúf helgi í glæsilegu veðri.

 

María Kúld og Vera stungu af til Krítar og má segja að María hafi kynnst stóru sumarástinni.  Enda datt ekki af henni brosið í marga mánuði eftir.  Hún smakkaði nefnilega grískan feta ost og bókstaflega missti saur, kom með sýnishorn heim og át í hvert mál. Hún fitnaði víst um 20 kíló eftir sumarið.

 

Grundarfjarðardagar gengu í garð og skellti krúið í eitt stykki útilegu í tilefni þess.  Ég skemmti mér konunglega, drykkjuhringurinn okkar var krúttlegur og djammið virkilega skemmtilegt.  Það vöknuðu hins vegar áhyggjur því það var feiknastór kamar staðsettur í brekkunni fyrir ofan tjaldið okkar og viti menn, honum var að sjálfsögðu hrint niður.  Margir óska þess eflaust að skíturinn hefði flætt um allt svæðið og á tjöldin okkar en svo varð ekki. 

 

Það ætlaði allt um koll að keyra einn góðan veðurdag þegar 100 manna crew mætti í ferjuna Baldur til að taka upp Brúðgumann í Flatey.  Mín hélt varla vatni á landgangnum og missti svo algjörlega vatnið þegar Hilmir Snær stóð á bryggjunni með gust í hári.  Dáleidd af stjörnufansinum hleypti ég öllum vitleysingunum um borð án þess að taka af þeim miða.  Stýrimaðurinn hreinlega reif af sér hjálminn af reiði og húðskammaði mig fyrir þessi afglöp í starfi. En það var þess virði, allt fyrir Hilmi minn.

 

Ágúst

 

Verslunarmannahelgin var viðburðalaus að venju hjá mér en í ágætu teiti hjá Kristjáni var samið gullfallegt lag um ástina lífið og tilverunna, þeir muna það sem viðstaddir voru.

 

María, Auður og Vera stungu af á Þjóðhátíð í Eyjum.  Það virðist vera rosaleg upplifun því flakið af Maríu var hin mesta hryggðarmynd eftir að hún kom heim.

 

Ósk tilkynnti okkur um að fyrsta gígantíska barnið væri á leiðinni, en það er von á því í marsmánuði 2008.  Mikil eftirvænting er eftir því og heyrst hefur að María Kúld ætli sér að vera viðstödd fæðinguna og fara með bænir á hebresku á meðan.

 

Ósk stakk einnig af til Noregs með kallinum.

 

Danskir dagar voru snilld að venju, og að venju var ég að vinna. Ég lét það ekki aftra mér í djamminu og tók þetta með trukki, vakti allan sólahringinn og slapp þannig við þynnku í vinnunni.  Mæli með því fyrir þá sem eru úr stáli eins og ég.  María fann nýjar leiðir til að skemmta sér, hún staupaði black death, tók svo á rás og tæklaði alla sem á vegi hennar voru.  Mælingar sýndu að hún var á 60 km hraða þegar hún hljóp hraðast.

 

Mitt fjórða og síðasta menntaskólaár hófst með láði.

 

Ég varð 19 ára gömul þann 24.ágúst og EKKI með láði! Ég ákvað í tilefni þess að partý og bjóða vinkonum mínum í mat, eins hættulegt og það hefði nú getað orðið en allir lifðu af.  Það sama er ekki hægt að segja um partýið en þar drukku margir yfir sig og dóu hér og þar um húsið.  En þetta var stórgóð veisla og ég þakka öllum sem heiðruðu mig með komu sinni og sérstaklega þeim sem mættu með gjafir. Furðulegasta gjöfin var án efa rassakúlurnar frá Jóni og Sigga, sem hurfu svo sporlaust útúr húsinu. Hmm.... Bjarki!!

 

Hrönn réð sig sem stunt í Flateyjarmynd Baltasars Kormáks ásamt fleirum og viljum við minna fólk á það þegar það sér þessa mynd og sér Hilmi Snæ og Margréti Vilhjálms faðmast uppá efsta dekki Baldurs, þá eru það í raun Hrönn og Gísli Sveinn.  Þau munu einmitt gefa eiginhandaráritanir í Bónus, daginn sem myndin verður frumsýnd.

 

September

 

Vera Dögg kom með eina af betri sögum seinni ára: "Hann ætlaði bara að berja hann sko, Einar bara..tók af sér gleraugun...."

 

Og bestu hótun ársins: "Auður ef þú verður brún, þá ætla ég að gefa þér FRÖNSKU!"

 

Og besta plan ársins: "Ég sver, ef hann ætlar að taka mig....þá ætla ég bara...að segja honum að sleppa mér!!"

 

Busavíglsa FSN fór fram eftir langþráða bið en ég meig á mig kvöldið áður af spenningi.  Kristján Pétur Andrésson (Adda Píp) hefur án efa migið á sig líka af hræðslu en útreiðin sem stráksgreyið fékk má helst líkja við húðstrýkingu Jesú Krists (amen halelúja). Hann var ekki sá eini því nokkrir busalingar sem reyndu að flýja voru hengdir upp á hásinunum og hrækt á þá þangað til þeir drukknuðu. En vígslan heppnaðist sem best og allir lifðu af, tæplega þó. 

 

Samdægurs var busaball FSN undir stjórn hljómsveitar sem ég man ekkert hvað heitir. Ég get lítið sagt frá ballinu þar sem ég var upptekin við góðgerðarstörf meðan á því stóð, en partýið í Fákaseli var hin mesta skemmtun.

 

Auður stakk okkur af og hélt til Suður Afríku þar sem hún hjálpaði börnum og lét gott af sér leiða, milli þess sem hún hrundi í það og sýndi gott fordæmi.

 

Réttarball var haldið á Skildi, mikið fjör þar, maður lamdi annan og svoleiðis huggulegheit.

 

Við nokkrar skelltum okkur á ball á Klifi í Ólafsvík og þar komum við að undir veraldar, meðlimur í aðalstjórn skóla okkar, pissfullur að twista.  Við höfum ekki hlegið svona mikið síðan við vorum 6 ára og Dumb and Dumber var frumsýnd.

 

Október

 

Leikfélagið í Hólminum frumsýndi Óliver Twist þar sem Hrönn og Bjarki fóru á kostum í hlutverkum gribbu og geðsjúklings. 

 

Kindabíllinn, hinn þjóðþekkti veiktist hastarlega í Ártúnsbrekku á leiðinni heim í Hólminn og neyddist ég til að snúa við og koma honum tafarlaust undir læknishendur.  Eftir linnulausar endurlífgunartilraunir, grát og gnýstan tanna og álit frá mörgum læknum var hann úrskurðaður látinn þann 6.október.  Bíllinn var öllum harmdauði og forseti Íslands Óli grís, rauf allar útsendingar í sjónvarpi og hélt minningarávarp.  Einnig var gert vídeo og má sjá það hér.

http://www.youtube.com/watch?v=ZxGXbfpAj0w

 

Auður varð 20 ára gömul og tók víst illilega á því úti í Afríkunni.

 

Nóvember

 

Halloween ball FSN fór fram og var engu til sparað við gerð búnings á gígantíska bænum.  Við Hrönn og Drífa ákváðum að vera síamsþríburar og saumuðum hinn fínasta búning sem fékk þó ekki að njóta sín lengi.  Ballið er ekki í fersku minni hjá mér en það ku hafa verið fínt.

 

Vera Dögg varð 20 ára og átti sér einskis ills von.  En við ákváðum að henda henni í ratleik, uppá klædda eins og fífl. Meðal annars létum við hana trufla blakmót í íþróttahúsinu og versla tussuduft á Bensó. Hún hélt svo feikistórt matarboð og veislu um kvöldið og skemmtum við okkur allar konunglega, sérstaklega þegar Vera brast í grát undan ræðuhöldunum.

 

Nýr Kindabíll fæddist eftir langa bið en hann hefur verið skírður BOMSI vegna íturvaxins afturenda hans.  Hann hefur verið að skila sína vel fyrir utan fáein tæknileg frávik. Hann verður málaður í einhverjum kjánalegum litum áður en yfir líkur. En ekki kindur...það er só 2007.

 

Desember

 

Jólaball FSN fór vel fram að sögn viðstaddra en crewið okkar tók kvöldið frá til að bögga lögregluþjóna í Grundarfirði, eftir að undirrituð komst í kast við lögin fyrir vesen tengt hömstrum og arseniki, ákváðu tvær aðrar að gera enn betur og sprændu á lóð lögreglustöðvarinnar í Grundarfirði, sem eins og flestir vita er lögbrot og pjúral heimska.  Stúlkurnar voru teknar fastar með buxurnar á hælunum og þvingaðar til að gefa þvagsýni til að athuga með fíkniefnamagn, þær sögðu þeim að drulla sér út á tún og sleika upp hlandið þeirra.  Hermundur Pálsson lögregluþjónn úr Stykkishólmi á ekki til orð yfir hegðun stelpnanna og segir þær óstýrlátar og virðingarlausar. Hann segist einnig hafa fundið 4 kíló af kókaíni í fórum tengdadóttur sinnar en eftir þrotlausar rökræður við son sinn ákvað hann að sleppa henni með áminningu.

 

Birgitta mín og Geir urðu foreldrar þann 8.des, eignuðust lítinn stubb 5 vikum fyrir tímann.  Óþolinmæði drengsins hafði látið á sér kræla áður, en hann krafðist útgöngu að minnsta kosti tvisvar á óheppilegum tímum.  Strákurinn braggast vel og ku hafa fengið nafnið Ásgeir Yngvi.  Ég mun kíkja á þau sem fyrst og byrja að spilla drengnum og kenna honum hin ýmsu óyrði.

 

Auður kom heim, ástfangin sem aldrei fyrr og íklædd fílabeinskjól með ljónsmakka á hausnum. Drífa átti ekki til orð og spurði: Sástu ljón?

 

Drífa kláraði stúdentinn, sömuleiðis ofurhjónin Ísak og Sædís og einnig hann Björn Ásgeir Hrafnhildarson, barón og greifingi hins himneska friðar.

 

Stuðbandsball á Skildi var hið skemmtilegasta fyrir utan kápustuld sem kom niður á henni Drífu okkar.

 

Ástarmál gígantísktu kvennana hafa vakið usla, enda vilja frillumennirnir sveiflast upp og niður í aldri, sumar hanga í öldungadeildinni á meðan aðrar halda sér í litlu börnunum.  Allt hið besta mál þangað til siðgæðisnefnd kemst í málið.

 

Djammið í desembermánuði voru mörg og hvert subbulegra en annað og má segja að við höfum lokað árinu með trukki.

 

Fáeinar svipmyndir af árinu

 

Ein af mörgum góðum stundum í Byrginu.
Ein af mörgum misþyrmingum í Byrginu
 
Kindabíllinn sálugi
Garðpartýið ógurlega
Böðlar FSN 2007
 
Drífa stúdent og illa sátt.
Við á leiðinni á Stuðbandsball 2.jólum
Danskir Dagar 2007. Rúnari Kúld leiðist ekki félagsskapur fagra meyja eins og sést.
Eitt subbulegasta djamm ársins, 80's djamm! Ann-Sophie þarna nýkomin á klakann og strax farin að slefa!
Auður stúdent!
Ég og frelsisstyttan í Róm. Skemmtilegt starf án efa.
Vera Dögg að trufla blakmót, allt varð gjörsamlega vitlaust!
Á vígvelli böðla og busa.
Ein af stærri fréttum fréttablaðsins á árinu.
Vistmenn á Kleppi
Árshátíð FSN 2007, eitt flottasta stjörnuhlið norðan alpafjalla þarna á ferð.
Stolt fjölskyldu minnar, Guðmundur í Byrginu.
Eins og sést þá átum við mikið á árinu. Afmælisdinner Drífu!
Túrtappadjammið, menn fóru klístraðir heim þetta kvöld.

Skásta bros sem María Kúld getur kreist fram.

 

María Kúld tvítug og ógeðslega hresssss!
Ég, Aron Pálmi og Hitlersdóttir
Sumarstarf mitt,
Besta afmælisgjöfin!
Stuð á Grundaradögum.  Gísli rak einmitt svo hræðilega við í þetta tjald að það er ónothæft í dag.
Mmmm, þetta var ekki leiðinleg vika.
Ég og ofurmamman á Ísafirði!
 
Þarna er hún komin með lillann!
 Það væri ekkert erfitt að týna honum!
Hinn hræðilegi 19 ára aldur.
Jólaball FSN
Framtíðarspá ársins 2008!
Mun Vera byrja að keðjureykja??
Mun María hætta að borða servíettur?
Munu Drífa og Hrönn komast í Extreme Makeover?
Munu Anna og Gísli eignast heilbrigt og fallegt barn? Sjáum til hvað gerist á RHODOS
Mun Ósk byrja að drekka eftir að hún eignast barnið?
Mun Stjáni Pé ná Hrönn og Auði í 3some???
Mun María læknast af sjálfsmynda-syndrominu?
 
Fær Vera afgreiðslu?
Mun Hrönn sættast við Bush og semja frið við kapitalista?
Mun Anna fara í brjóstastækkun til minningar um tvífara sinn, Önnu Nichole Smith?
Mun Auði verða hleypt aftur til Suður Afríku? Pottþétt ef hún notar þennan svip!
Munu pólitískar skoðanir okkar valda meira fjaðrafoki?
Mun María uppgötva meira um kynfæri kvenna?
 Við munum komast að sannleikanum um þetta allt þegar líður á árið!
TAKK FYRIR ÁRIÐ!!
-ANNA MARGRÉT PÁLSDÓTTIR-

» 10 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 12:18:40 / Quémango

Annáll

Hvar í andskotanum er annállinn?! vil sjá hann hérna ekki seinna en strax!

» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 14:58:03 / Quémango

Gleðileg Jól

Hæhæ ég ætla að hafa þetta mjög mjög stutt:D

'Eg ætla bara að bjóða öllum gleðilegra jóla og farsælt komandi ár. hafið það gott um jólin og áramótin:D

Kv. 'Osk, Siggi og Bumbubúinn


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 12:18:40 / Quémango

Í jólafrí ég fer fer fer

Jæja þá eru misfríðu fljóð gígantískt komin í langþráð jólafrí og leggst það misvel í menn. Drífa Skaft er að fara að útskrifast næsta föstudag, hafa má eftir áreiðanlegum heimildarmönnum að gleðin sé svo mikil í Kúlds að enginn í Silfurgötunni hefur komið dúr á auga í rétt rúman mánuð þar fyrir utan var Olgus Kúld að útskrifast úr húsfreyjuskólanum. Segja þeir sem til þekkja að hún þylji upp heilu uppskriftir af bjúgum og uppstúf á nóttunni að gamla fólkið á elliheimilinu haldi hvorki þvagi né saur! Síðan skólinn kláraðist hefur ekkert sést til önnu margrétar, hún er sögð hafa yfirgefið stykkishólm aðfaranótt miðvikudags á bomsanum sínum. "Hún var tryllingsleg til augnanna og ökulag hennar var háskalegt þar sem aðeins 3 hjól voru undir bílnum" segja glöggir laganna verðir frá Stykkishólminum. Lítið hefur sést til Hrannar en hún sást þó á vappinu fyrir utan leikskólann í gær að syngja jólalög, leikskólinn er nú í sóttkví og hefur engum verið hleypt út. Þeir sem séð hafa til hennar eru beðnir um að snúa sér til suðurs til að stanga ekki á við Feng shui - ið hennar, Því þá ku hún verða ásargjörn. Aðrar sögur eru segja af Maríu Kúld, hún hefur ekki sitið auðum höndum í jólafríinu og hefur stofnað sértrúarsöfnuð ásamt Bjarka í Byrginu, keppast þau við að draga fólk á tálar nóttana á milli og gengur að sögn stykkishólmspóstsins alveg Ggggggglymrandi vel! *Klapp* *Klapp* fyrir því!

Það er þó að frétta að jólaball NFSN var haldið seinasta föstudag, eða 7. desember við mikinn fögnuð nemenda skólans. Tókst maturinn og ballið með eindæmum vel og voru lang flestir ánægðir mjög með útkomuna. Eftirmálar ballsins voru nú mis góðir fyrir mis gott fólk, ef svo mætti að orðum komast. Hinar ýmsu slúður síður úti á nesi hafa lýst yfir miklum áhyggjum vegna hegðunnar gígantíska liðsins og þökkum við þeim mjög fyrir það. Þó það sé ekki stór ástæða til að hafa áhyggjur af okkar rössum þegar það er nóg af öðrum rössum sem þær ættu að hafa áhyggjur af. Anywho, þá vil ég koma með skýringu á blautri hegðun sumra kinda, þannig er mál með vexti að anna gaf hemastrinum sínum að borða áður en við fórum. Svo þegar á ballið var komið fékk hún símhringingu frá Landspítala Háskólasjúkrahúss um það að hann þjáðist af bráðri blöðrubólgu og TF-Líf hefði gert sért lítið fyrir og bara rennt eftir honum vestur í Hólm. Líðan hans er nú stöðug og viljum við biðja Reuters-Snæfellsnes að leggja frá sér pennan og fá sér blund því hér er ekkert að óttast. "Þetta er erfitt, en ég brosi í gegnum tárin, ég mun braggast" má hafa eftir önnu margréti. Þá má líka nefna að allt varð vitlaust í Ólafsvík sama dag og jólaball NFSN, svo mikill var vindurinn að dyr og gluggar leikskóla Snæfellsbæjar mölbrotnuðu. ekki nóg með það en nokkrir vistmenn þar sluppu út í buskann og alla leið inn í Grundarfjörðinn góða. Það var ekki nóg heldur ákváðu þeir að gera bara gott úr þessu og skella sér á alvuru framhaldsskólaball við misgóðan fögnuð viðstaddra. Kraftur í þessum Ólsurum. Mælum við eindregið með því að stjórn Leikskólans kaupi sér FOKK fok-helt gler og stóra lása svo slíkt hið sama atvikist eigi aftur.

Við biðjum ykkur vel að lifa,

elskið friðinn!  


» 8 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 16:33:58 / Quémango

Sæl veriðið

Jæja nú er ég sko ánægð, það er svo rosalega stutt til jóla og stutt í að ég komist heim í sveitina mína fögru:D:D    En núna eins og staðan er búin að vera í 1 mánuð nei 2 og hálfan mánuð afsakið mig:S  Mér er búið að líða eins og versta boxpúða í heimi það er sko ekki grin það er sparkað og lamið mig að innann daginn út og daginn inn síðan loksins þegar ég er að fara að sofa þá liggur við að ég læðist til að vekja ekki barnið en nei þegar ég er alveg að sofna þá er eins og barnið sé að bíða til þess að hrekkja mig og eins og það sé dansandi út í eitt og sparkandi þannig það er ekki hægt að reyna komast fram hjá því:D:haha:   en núna erum við búin að ná í rimlarúmið sem við áttum þegar við vorum litil og við erum bara komin með fullt af barnadóti:)    En núna var ég að enda við að mála piparkökur ég er strax farin að æfa mig fyrir næstu eða þar næstu jól en það kemur bara í ljós hvort ég nenni því kannski sendi ég bara barnið til Elvu og hún sér um þetta:haha:   En núna er þetta komið nóg að sinni verið þið sæl og blessuð:D
                                        'Osk Hjarta

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 01:50:32 / Quémango

Hverjum datt í hug að hleypa kusunum útí þennan barning!

Það verður ekki komin jólastemming í þennan bæ fyrr en fretbuxi allra landsmanna, hann gísli hættir að taka í vörina og óveðrið gengur yfir til Staðasveitar. Kuldaboli kom til mín áðan og spurði mig frétta, ég gaf honum hnoðning og bæjaði honum út með hrífuskafti, þá fór hann og sökkti margri jólaseríunni og í óðagoti sökkti hann með sér bát í Skipavíkurhöfn. Það er allt að fara til andskotans.

Í heiminn hefur fæðst nýr kindabíll. Eigi mun hann hafa punginn þar sem foveri hans hafði kónginn, en hann er þó bjargvættur á 4 hjólum í stinningskalda sem þessum. Hann hefur fengið nafnið Mitzubishi Lancer og fæddist hann árið 1993, eldrauður að lit og með íturvaxið skott.  Það var komið í ljós löngu fyrir fæðingu að hann yrði fjórhjóladrifinn með toppgrind og nagladekkjum, en ekki grunaði okkur að hann væri með lekandi framrúðu og stuðaralaus. Það er ögn mikið ryð á tromluhaus en annars alheilbrigður prins. Hann er hins vegar svo ljótur að það er ekki til nein mynd af honum á netinu né bíl af sömu tegund, en ég mun hiklaust mála eitthvað vafasamt á hann og síðan taka af honum mynd.

Það er að frétta af hinum látna kindabíl, sem liggur nú og bíður greftrunar við stykki hf, að það er búið að gera tilraun til að sjúga úr honum eldsneytið sem ég setti á hann rétt fyrir lát hans, sá hinn seki skildi eftir sönnunargögn, rör og brúsa, sem hafa þegar verið send lögreglunni í Stykkishólmi, sem er án efa núna að svitna yfir rannsókninni á milli þess sem þeir ganga á milli heimila og sekta ungabörn fyrir læti. Einnig er búið að rífa úr honum segulbandstækið, rafgeymin og númeraspjöldin. Einnig hafa mýs gert sér upp heimili í aftursætinu. Sunrise sunset

 Áður en jólin koma,mun ég reyna eitthvað róttækt til að hafa efni á jólagjöfum. Þrennt kemur til greina. Að hnupla kreditkorti Heimis Kúld og versla fyrir hann fitusog í leiðinni, byrja að elda alls kyns mat og selja fólki, eða senda hitmenn á vitleysinginn í Ólafsvík sem vann í lottóinu um daginn, hvernig sem fer, mun ég eignast pening og allir nema íhaldið vinnur.

Ég er farin, María ég er búin að gera pistil þannig að haltu nú kjafti.

Strjúkið hann - AMP -

Ps. Vil taka það fyrir fram að ég veit ekkert hvað kom yfir mig meðan ég var að skrifa þennan pistil.


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 15:11:34 / Quémango

Þakka fyrir mig..:)

Jæja þá er maður orðin 20 ára, þeim aldri bjóst ég aldrei við að ná miðað við hvaða vinahópi ég lenti í á unga aldri! En svona er þetta nú einu sinni maður velur EKKI vini sína þegar maður býr útá landi! hehe

 En Krúttilínurnar ykkar langaði bara að þakka kærlega fyrir mig.. þó svo að þið hafið gert mig af fífli þá án efa var þetta einn skemmtilegast dagur lífs míns..:)

Skelli inn einni mynd af mér svona í tilefni afmælisins
TAKK TAKK SNÚLLURNAR MÍNAR!!
Kveðja
Vera Dögg
p.s. vil minna ykkur á að minn tími mun koma..;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 18:00:07 / Quémango

Ný frétt:)

Hellúúúú allir saman Hólmarar sem líka Reykvikingar:)  Jæja núna er kominn tími á að segja fréttina en ég býst ekkert við að þetta sé einhver frétt lengur þar sem örugglega allir í hólminum vita þetta alveg örugglega:) Þannig er má með vexti að ég er ólétt og er komin 20 vikur og 4 daga á leið jahá þetta líður svo voðalega hratt að það er nú bara alveg voðalega fyndið:)  En allavega ég er sett 20.Mars 2008 þá kemur ósk nr 2 eða óskar 2 æi mér datt ekkert annað nafn í hug:S  En allavega ég fór í sónar á Fimmtudaginn og kom þá bara allt vel út sko eins og ég vonaðist til og barnið hefur stækkað mikið:) En það gerir ekki annað en sparka og sparka hmm frá hverjum fær hún eða hann það hmm:D:D  En allavega gengur allt bara jafn vel og síðast þegar ég var að skrifa þannig ég held að ég hafi ekki meira að segja annað en veriðið ble,ble

 

                              Kveðja 'Osk og Bumbukrúttið:D


» 14 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 09:32:41 / Quémango

Hún er blindfull og stútfull af dópi!

Já, þá er helgin búin og kominn mánudagur enn einu sinni, fáum til mikillar gleði! En það eru ýmsar ástæður til þess að brosa svona út í annað. Þess má geta að það eru einungis 5 vikur eftir af skólanum! Það vantar 49 daga til jóla, með tilheyrandi partýstandi og látum! Já vinur minn, tími til kominn að tæma spari svínið (eða Hrönn einfaldlega, eins og ég kalla það;).

Helgin var nú alveg skítsæmó, mætti segja að hún hafi hafist á fimmtudag þegar ég fór á generalprufu á leikritinu Ólíver Twist þar sem margir fóru vægast sagt á kostum, nema Bjarki sem fór hamförum! Hrönn og Mattías voru frábær og felldi maður allnokkur tár ef svo mætti að orði komast. Á föstudeginum var svo fumsýning og eftir hana tilheyrandi partý stand. Elstu menn segja að önnur eins læti hafi ekki fyrirfundist síðan að menn hófu að brúka telefóninn hér árið sautjánhundruð og súrkál. "Þvílík gleði - þvílík ást - þvílíkur viðbjóður" má hafa eftir blaðamennum Reuters. Hrönn fór þar í flikk flakk og arabastökk niður endilanga hótelbrekkuna, tók Mattías niður með vinstri krók og stórsér á greyjinu. Vegna þessa hryllilegu atburða ákváðum við Mattías ásamt fögru fylgiliði úr sundlauginni að skella okkur á árshátíð Stykkishólmsbæjar. Þar ákvað mattías að drekkja sorgum sínum í einhverju öðru en vígðu vatni, síðan þá hefur ekki sést til hans. Blessuð sé minning hans. Sunnudagurinn var afspyrnu rólegur ég setti heimsmet í því að brúka kjaft við tölvuna mína þar sem mér var það ógeranlegt að vinna 29 level í bubble struggle. En nú eru aðrir tímar þar sem undirrituð náði að komast hátt yfir fertugasta level og er stolt af því! Helgin var svo botnuð með videóglápi í Byrginu ásamt tilheyrandi nammiáti, slaufum og hoppa-húllla dönsum. Eftir að hafa brotnað niður af Family Guy gerði undirrituð sér heimakært og gisti þar nóttina. Það fór nú ekki betur en svo að sú hin sama lyggur nú inn á bugl eftir ólæti nóttarinnar. Þar sem anna brúkaði hina ýmsu rafknúnu hluti hvað eftir annað. Megir þú fá raflost mín kæra ;)

Jæja, ég kveð þá að sinni.. því, jú, heimskir verða víst að læra!

Þangað til löngu seinna en á morgun

Kanslarinn!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 30
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti